„Við viljum að tryggt verði að höfuðstöðvar Háskólans á Hólum verði á Hólum í Hjaltadal,“ segir Sólrún Harðardóttir sem er í hópi íbúa og velunnara sem afhentu undirskriftalista með 1.360 nöfnum í Stjórnarráðinu í gær. „Þetta er ein af þeim kröfum sem settar eru fram.“
Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum héldu tvo fjölmenna fundi í vor um stöðu mála á Hólum og sendu frá sér yfirlýsingu ásamt skýrum kröfum, sem einmitt eru þær sömu og koma fram í tengslum við undirskriftalistann. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, tók við undirskriftunum í gær, fyrir hönd Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.
Dýrmæt söguleg táknmynd
Gerður var samningur á milli ríkis og sveitarfélagsins Skagafjarðar 13. maí sl. sem tekur á þjónustu við þéttbýlið á Hólum og skipulagsmál. „Það var mikilvægur áfangi sem vissulega kom verulega til móts við eina af kröfunum.“
Eftir stendur, að sögn Sólrúnar, óvissa um byggingar Háskólans á Hólum, m.a. aðalbygginguna, en áætlanagerð um viðhald húsanna og hlutverk sé enn í mótun og óljós.
„Skólahúsið er táknmynd skólans og kjarni. Aðalbyggingin var byggð sem skólahús og hefur verið notuð sem slík í meira en 100 ár. Þessi staðarmynd eða ímynd Háskólans á Hólum hefur mikið gildi, tengist sögu staðarins, og við megum alls ekki kasta henni fyrir róða. Það eru verðmæti fólgin í þessari sögu og við teljum að hlutverk þessara bygginga sé að hýsa metnaðarfullt háskólastarf, þótt tími sé kominn á viðhald.“
Höfuðstöðvar á Hólum
Sólrún segir einnig hafa skort á samráð við íbúa, starfsfólk og velunnara í tengslum við flest áform er sett hafa verið fram um framtíð Hóla og Háskólans á Hólum. „Það er ekki það sama, samráð og upplýsingagjöf,“ segir hún og bætir við að gert sé ráð fyrir mikilli uppbyggingu skólans á Sauðárkróki sem fólk telji að geti komið niður á eðlilegri uppbyggingu á Hólum.
„Að sjálfsögðu verður fiskeldis- og fiskalíffræðideild áfram á Króknum, eins og hún hefur verið meira og minna undanfarin 20 ár. En hjarta háskólans er á Hólum og mikilvægt að nafli skólalífsins sé þar,“ segir hún og nefnir í því sambandi skrifstofur, félagsaðstöðu, bókasafn, mötuneyti, íþróttalífið og heimili nemenda.
„Það er vissulega hægt að auka ferðaþjónustuna enn meira, því áhuginn er mikill. Best er að á Hólum verði haldið í söguna með myndarlegu skóla- og menningarstarfi, svo staðurinn endurspegli sína merku sögu.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.