Hitinn gæti náð 25 gráðum þegar best lætur á Austurlandi í dag en fjölmargir hafa lagt leið sína þangað til að njóta blíðunnar.
Í dag verður sunnan og suðvestan 5-13 m/s en 10-18 m/s um landið norðvestanvert. Á Suður-og Vesturlandi er gert ráð fyrir súld með köflum með hita á bilinu 10-15 stig en bjart verður norðaustan- og austanlands þar sem hitinn verður á bilinu 18-25 stig.
Á morgun gerir spáin ráð fyrir sunnan og suðvestan 8-15 m/s en 13-20 m/s norðvestanlands. Skýjað og dálítil súld verður á Suður- og Vesturlandi og fer að rigna vestantil seinni partinn. Hiti verður á bilinu 10 til 15 stig. Norðaustan- og austanlands verður áfram bjartviðri með hita á bilinu 18 til 25 stig.