Hægfara lægð á Grænlandshafi og vaxandi hæðarhryggur skammt fyrir
austan land valda suðaustlægri átt í dag. Kaldi eða stinningskaldi suðvestan og vestantil og skýjað með köflum og líkur eru á smáskúrum. Búist er við hægari vindi og björtu veðri að mestu á Norður- og Austurlandi.
Í nótt frystir allvíða en yfir daginn verður hiti á bilinu 4 til 11 stig.
Á morgun verður hæg breytileg átt og víða léttskýjað en sunnan 5 til 10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum við vesturströndina fram eftir degi og hlýnar heldur.
Útlit er fyrir rólega suðvestanátt á þriðjudag með björtu og mildu veðri, en líklega lætur
þokusúld á sér kræla við vesturströndina.