Hæsti hiti sumarsins til þessa féll á Seyðisfirði í dag þegar hiti náði 28 gráðum.
Teitur Arason veðurfræðingur býst ekki við að hærra hitastig mælist á landinu í dag.
„Nei, mér finnst líklegast að þetta verði bara svipað í svona einn, tvo tíma í viðbót og svo fari að síga niður á við,“ segir Teitur í samtali við mbl.is.
Minna sólskin en var
„Þessi háskýjabreiða er komin þarna yfir þannig að það er minna sólskin þarna heldur en var og heitasta loftið er farið austur af þannig að sennilega verða hlýjustu mælingarnar fyrir hádegi í dag en ekki eftir hádegi eins og vanalega er.“
Hiti mældist 27 stig í Neskaupstað í gær.