„Hingað til hef ég verið dekurgolfari“ - MBL.IS

„Hingað til hef ég verið dekurgolfari“ - MBL.IS

„Hingað til hef ég verið dekurgolfari“ - MBL.IS

Lindu Benediktsdóttur þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, sérstaklega þeim sem hafa áhuga á matargerð. Hún er einn fremsti matgæðingur og uppskriftahönnuður landsins og rekur uppskriftasíðuna lindaben.is þar sem hún deilir uppskriftum að gómsætum réttum. Auk þess hefur hún þróað eigin línu af bakstursvörum og smákökum sem notið hafa mikilla vinsælda.

Eldhúsið er þó ekki eini vettvangurinn þar sem Linda nýtur sín því hún er einnig mikill kylfingur og ver drjúgum tíma á golfvellinum, bæði hér heima og erlendis. Það var eiginmaður hennar, Ragnar Einarsson, sem kynnti henni golfið á sínum tíma og síðan þá hefur áhuginn farið ört vaxandi. Saman eiga hjónin tvö börn, þau Róbert og Birtu, sem eru bæði byrjuð að æfa golf.

„Ragnar hefur verið í golfi frá því að hann var barn þannig að það fylgdi eiginlega pakkanum þegar við byrjuðum saman að ég myndi á einhverjum tímapunkti prófa golf líka. Til að byrja með fannst mér golf samt frekar tímafrek íþrótt. Einn golfhringur tekur auðveldlega fjóra tíma og það er ekki eitthvað sem maður sér í mörgum öðrum íþróttum. Þegar börnin voru lítil höfðum við heldur ekki mikinn tíma. Áhuginn kviknaði svo almennilega þegar við fórum að taka golfsettin með okkur erlendis. Það er eitthvað svo notalegt við að vera saman í góðu veðri, úti að ganga, spjalla og njóta stundarinnar. Það skipti í raun engu máli hvernig við vorum að spila, þetta varð meira upplifun og dýrmæt samvera. Þar kviknaði golfáhuginn hjá mér fyrir alvöru,“ segir Linda þegar hún er spurð hvernig golfáhuginn kviknaði.

Keppnisskapið er aldrei langt undan hjá Lindu, henni finnst þó …
Keppnisskapið er aldrei langt undan hjá Lindu, henni finnst þó mikilvægast að njóta og hafa gaman á vellinum.

„Ég er mjög keppnismiðuð“

Linda segir það ekki aðeins vera leikinn sjálfan sem heilli sig við golfið heldur einnig allt sem fylgir sportinu, allt frá útiverunni og félagsskapnum yfir í stemninguna á vellinum. „Ég heillaðist fyrst og fremst af stemningunni í kringum golfið. Náttúran, félagsskapurinn og auðvitað sætu golffötin. Svo er golf líka þannig íþrótt að maður er alltaf aðeins að reyna að bæta sig. Ég er mjög keppnismiðuð gagnvart sjálfri mér og það heillar mig mikið.“

Aðspurð segist Linda hingað til helst hafa verið það sem hún kallar „dekurgolfari“ og að mestu spilað erlendis í sól og hlýju. Í sumar ætlar hún hins vegar að vera duglegri að láta sjá sig á íslenskum golfvöllum. „Ég er í fyrsta skipti skráð í golfklúbb núna í sumar. Hingað til hef ég verið dekurgolfari og aðallega spilað erlendis í sól og tuttugu stiga hita þannig að það verður mjög spennandi að sjá hvernig íslenska golfsumarið tekur á móti mér. Ég vona bara að veðrið í Mosfellsbænum verði mér hliðhollt svo ég komist sem oftast út á völlinn í stuttermabol.“

Linda segist vera með ákveðin markmið fyrir golfsumarið þó að aðalatriðið sé alltaf að njóta þess að vera úti á vellinum. Hún ætlar meðal annars að leggja meiri áherslu á púttið á komandi tímabili.

Linda tekur sig vel út á golfvellinum.
Linda tekur sig vel út á golfvellinum. mbl.is/Karítas

Ertu enn að fullkomna sveifluna?

„Ég held að maður hætti aldrei að vinna í sveiflunni. Ég elska að bæta mig en með árunum hef ég líka lært að taka hlutina aðeins minna alvarlega. Ég tek golfið ekkert of alvarlega og stundum sleppi ég bara að telja. Mér finnst mikilvægast að hafa gaman.“

Seturðu þér markmið í golfinu, eins og að lækka forgjöf eða ná ákveðnum árangri?

„Ég var lengi að glíma við að boltinn færi alltaf of mikið til hægri hjá mér en mér finnst ég loksins vera að ná aðeins betri stjórn á því. Núna er markmiðið helst að verða betri í að pútta. Ég hef ekki æft það nógu mikið og mér finnst líka alltaf jafn merkilegt hvað pútt geta verið mismunandi eftir því hvernig flatirnar eru. Það þarf stundum alveg ótrúlega mismunandi kraft.“

Linda hlakkar mikið til golfsumarsins og í fyrsta sinn ætlar hún að taka þátt í golfmóti.

„Ég hef alltaf litið á golfið fyrst og fremst sem skemmtun en í sumar ætla ég í fyrsta sinn að taka þátt í golfmóti. Það verður á Spáni hjá vinum okkar sem eru að gifta sig og eru bæði miklir golfarar. Ég er ótrúlega spennt fyrir því.“

Linda er nautnaseggur með keppnisskap.
Linda er nautnaseggur með keppnisskap. mbl.is/Karítas

„Við elskum að spila saman“

Eins og fram kom í byrjun var það eiginmaður Lindu sem kynnti henni golfið á sínum tíma og í dag skipar íþróttin stóran sess í lífi þeirra hjóna.

„Við elskum að spila saman. Þetta er alveg geggjaður tími fyrir okkur, að vera saman úti, spjalla, hlæja og stefna að sama markmiði. Við erum líka mjög dugleg að hvetja hvort annað áfram sem gerir þetta enn skemmtilegra. Þetta er líka mikill gæðatími með krökkunum þegar þau koma með.“

Linda viðurkennir að vera mikil keppnismanneskja þó að hún segist fyrst og fremst keppa við sjálfa sig.

„Ég er mjög mikil keppnismanneskja en ég keppi nánast bara við sjálfa mig. Ég grínast stundum með að ég ætli að verða betri en Ragnar í golfi og að hann þurfi að passa sig. Þar er þó ansi brött brekka fyrir mig þar sem hann hefur æft frá barnæsku og er með mjög lága forgjöf. Ég þarf líklega að æfa mig ansi mikið áður en ég næ honum.“

Hvernig fellur golfið inn í daglegt líf hjá þér?

„Það þarf alveg að forgangsraða golfinu, sérstaklega þegar maður er með fjölskyldu og mikið að gera. Það hefur þó orðið auðveldara núna þar sem krakkarnir eru líka byrjaðir að æfa golf. Þá verður þetta meira fjölskylduíþrótt þar sem allir geta notið þess að vera saman úti á vellinum. Við erum líka dugleg að fá vini okkar með í golfið og þannig hefur það í raun orðið stór hluti af félagslífinu.“

„Nauðsynlegt að vera vel nærð“

Aðspurð segir Linda golfið og matarástríðuna spila vel saman.

„Golfið snýst svo mikið um upplifunina í kringum leikinn. Góður matur og drykkur er klárlega hluti af því hjá mér. Það er alveg nauðsynlegt að vera vel nærð áður en haldið er út á völl. Þegar ég spila erlendis finnst mér til dæmis alltaf mjög notalegt að byrja á góðri samloku og kaffi í klúbbhúsinu áður en lagt er af stað. Eftir hring er svo auðvitað klassískt að fá sér góðan mat og drykk og njóta aðeins.“

Hvað hefur golfið kennt þér sem nýtist í daglegu lífi?

„Golfið hefur líklega kennt mér að taka lífinu aðeins léttar. Stundum fer boltinn allt annað en maður ætlaði sér og þá er eiginlega best að hlæja bara að því og halda áfram. Mér finnst það eiga mjög vel við lífið sjálft líka.“

Blaðamaður varð að sjálfsögðu að forvitnast um hvort Linda ætti einhverjar fyndnar golfsögur.

„Ég á nokkrar mjög góðar og fyndnar sögur. Nýlega keypti ég mér geggjað flott golfpils og mætti á völlinn, auðvitað algjör megaskvísa í nýja pilsinu. Við höfðum verið að drífa okkur um morguninn og ég hljóp nánast út úr húsi án þess að líta í spegil. Þegar á golfvöllinn var komið fór ég inn í klúbbhúsið til að kaupa samlokur fyrir okkur Ragnar og þar var allt troðfullt af fólki. Ég gekk fram hjá stórum hópi af eldri golfherrum og allt í einu kom einn þeirra labbandi á eftir mér. Ég skildi ekkert hvað hann vildi fyrr en hann stoppaði mig og sagði mjög kurteislega: „Excuse me darling, but you have a tag out on your skirt.“ Ég hafði sem sagt gleymt að taka miðann af pilsinu,“ segir hún og hlær áður en hún rifjar upp aðra sögu.

„Ein fyndnasta sagan var svo þegar ég fór með systur minni í golf en hún var nýbyrjuð og við báðar frekar óöruggar einar á vellinum. Ég var með svo mikla hálsbólgu að ég gat varla talað og sagði því við hana áður en ég sló: „Hildur, vertu tilbúin að öskra FOR ef ég hitti rosa vel“. Það fór ekki betur en svo að boltinn fór svona tvo metra áfram og enginn var í nokkurri hættu. Við hlógum svo mikið að þessu að nú köllum við alltaf „FOR“ í gríni þegar önnur okkar slær sérstaklega illa.“

Í lokin var Linda beðin um að lýsa sér sem golfara í þremur orðum og svarið lét ekki á sér standa: „Nautnaseggur með keppnisskap“.



Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/smartland/stars/2026/05/31/hingad_til_hef_eg_verid_dekurgolfari/

📰 Aðrar fréttir

Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 1
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 1
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 1
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 1
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 2
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 2
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.