Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir það hreina unun að vera í meirihlutasamstarfi með Viðreisn og Framsóknarflokknum í borginni.
Hún segist í upphafi hafa litist betur á það að vinna með Miðflokknum en að þegar liðið hafi á kosningabaráttuna hafi farið að renna á hana tvær grímur.
„Þegar að fram leið á kosningabaráttuna, þá gekk þeirra kosningabaráttu einhvern veginn út á okkar oddvita mikið til, en ekki endilega málefnin sem þau höfðu fengið frá okkur. Þegar þú þarft að fara að vinna með einhverjum og þetta er þeirra strategía, að þá er það ekkert endilega eitthvað sem að blasir við að sé auðvelt í samstarfi,“ segir Ragnhildur Alda.
„One happy marriage“
Virðist borgarfulltrúinn vera í skýjunum með það hvernig gengið hefur í samstarfi Sjálfstæðisflokksins við Viðreisn og Framsókn.
„Það er bara hrein unun að vinna með Framsókn og Viðreisn. Það er bara ógeðslega gaman hjá okkur. Ég held að það hafi bara aldrei verið jafn gaman hjá mér í þessum bransa. Það er svo skemmtilegt og ég held að fólk sjái það, íbúar sjái það og kollegar okkar í minnihlutanum sjá það, að þú veist, þetta er bara one happy marriage, þetta er mjög hamingjusamt samstarf.“