Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar í morgun og lagði af stað frá Þorlákshöfn til Eyja klukkan 11. Aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar.
Aðrar ferðir til og frá Landeyjahöfn falla niður þar til tilkynning verður send út síðdegis.
Landeyjahöfn hefur verið meira og minna lokuð það sem af er ári og bilun í Herjólfi gerir siglinguna lengri en vanalega.