Gripið hefur til þess ráðs að vísa á þriðja tug manna af framboðslistum fyrir sveitarstjórnar- og þingkosningar í Svíþjóð sem fram fara í september. Allir þessir einstaklingar ætluðu að bjóða sig fram fyrir Vinstri flokkinn og áttu það sameiginlegt að hafa ýmist fagnað árás Hamas samtakanna á Ísrael þann 7. október 2023, haft uppi hatursáróður í garð Gyðinga eða lýst yfir stuðningi við hryðjuverkastarfsemi
Vinstri flokkurinn er lengst til vinstri í stjórnmálum af þeim flokkum sem eiga sæti á sænska þinginu. Flokkurinn á rætur sínar í gamla kommúnistaflokknum. Flokkurinn hefur aldrei átt sæti í ríkisstjórn en varið ríkisstjórnir undir forystu jafnaðarmanna vantrausti. Flokksforystan hefur hins vegar ámálgað að nú sé komið að því að flokkurinn fái ráðherrastóla nái vinstri flokkarnir meirihluta á þingi í komandi kosningum.
Expressen hefur upplýst að þó nokkrir frambjóðendur flokksins til meðal annars borgarstjórnar í Helsingborg hefðu á samfélagsmiðlum lýst yfir ánægju sinni með árás Hamas. Einnig var efnt til fagnaðar utandyra í borginni sem skipulagður var af hreyfingu palestínskra kvenna. Á fögnuðinum var sælgæti dreift, börn klædd í herbúninga og hrópuð ýmis slagorð til stuðnings Hamas og árásinni.
Ekkert nýtt
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem flokkurinn hefur þurft að losa sig við fólk sem viðhefur slíkt orðfæri.
Tveir þingmenn voru reknir úr flokknum m.a. fyrir ummæli sem fólu í sér gyðingahatur. Borgarfulltrúi flokksins í Landskrona var einnig rekinn úr flokknum eftir að í ljós kom að hann hafði í töluverðan tíma dreift hatursáróðri gegn Gyðingum og lofað fólk með tengsl við hryðjuverkastarfsemi.
Varaformaður flokksins í Malmö sagði af sér eftir að hann tók þátt í samkomum þar sem árásinni 7. október var fagnað og sömuleiðis fagnaði hann árásinni á samfélagsmiðlum.
Fjöldi flokksmanna hefur mótmælt öllum þessum brottvísunum og krafist þess að þær verði dregnar til baka. Nooshi Dadgostar formaður Vinstri flokksins hefur hins vegar fordæmt árásina og sagt að gyðingahatur og stuðningur við hryðjuverkastarfsemi eigi ekki að líðast innan flokksins.
Frambjóðendur
Þeim frambjóðendum sem nú hefur verið vísað af framboðslistum flokksins eru þegar þessi orð eru rituð alls 22 talsins en einhverjir af þeim stigu þó til hliðar áður en að því kom. Expressen ræddi við nokkra þeirra en í öllum tilfellum var um að ræða miðaldra og eldri konur af palestínskum uppruna. Þær höfðu fagnað árásinni á samfélagsmiðlum og sumar tekið þátt í áðurnefndum fögnuði. Í samtölum sínum við Expressen vildu þær hins vegar sem minnst gera úr þessu athæfi sínu.
Expressen hefur raunar greint frá því að þrír frambjóðendur flokksins til viðbótar hafi hegðað sér með þeim hætti sem hér hefur verið lýst og þeir munu því væntanlega einnig víkja. Þá verður fjöldinn kominn upp í 25.
Nooshi Dadgostar segir við sænska ríkissjónvarpið SVT að það sé gott að umræddir frambjóðendur séu ekki lengur á listum flokksins þar sem þeir hafi alls ekki verið til þess bærir að bjóða sig fram. Lagði hún hins vegar áherslu á að aðeins væri um að ræða lítinn hluta af þeim sem munu bjóða sig fram fyrir flokkinn í sveitarstjórnar- og þingkosningunum í haust.