Í myndbandinu segir Guðmundur Felix, sem gekkst undir skurðaðgerð eftir að hann greindist með krabbamein í nefi. Þá var meinið fjarlægt og stóð til að hann færi í geislameðferð. Það var fyrir tveimur vikum en henni var frestað þegar læknar fundu eitthvað sem talið var að gæti verið nýtt mein.
Svo reyndist ekki. Guðmundur Felix sagði í myndbandinu í gær að geislameðferðin væri byrjuð. Hann væri að ljúka þessum kafla.
Þá sagði hann frá því að fyrir tveimur vikum hefði einnig komið í ljós að upp væri komið nýtt vandamál með handleggi hans, sem talið er að gæti verið vegna krabbameinsferðarinnar sem hann hefur verið í að undanförnu.
Guðmundur Felix sagði að það sem hefði verið mjög áhugavert við málið væri að sýni hefðu verið tekin af útbrotum á handleggjum hans. Þau hefðu sýnt fram á að það væri ekki svo að líkami hans væri að hafna handleggjunum, eins og síðast, heldur væru handleggirnir að hafna honum.
„Það getur víst gerst af því að gjafamergurinn sem er í handleggjunum framleiðir eigin hvítu blóðfrumur. Handleggirnir eru bara búnir að fá nóg. Til fjandans með þetta. Ég ætla ekki að hanga lengur með þessum krabbameinsgaur.“
Að öðru leyti sagðist hann hafa það gott og sagði frá því að í gær hefði hann verið edrú í nítján ár.