Heitir meiri landtöku: „Þetta er okkar land“
Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, boðar „stóra bylgju innflytjenda“ á landsvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, heitir því að halda áfram að koma á fót „landnemabyggðum“ á Vesturbakkanum, svæði Palestínumanna, þrátt fyrir vaxandi alþjóðlegan þrýsting. Hann lofar stórri bylgju innflytjenda til hernumdu palestínsku svæðanna.
Netanyahu, sem stendur frammi fyrir tvísýnum kosningum í október, leiðir eina mest hægrisinnuðu ríkisstjórn í sögu Ísraels. Hún hefur hraðað samþykki fyrir byggingu og stækkun ísraelskra landnemabyggða á Vesturbakkanum, sem eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum.
Útverðirnir, sem oft samanstanda af aðeins nokkrum hjólhýsum eða bráðabirgðamannvirkjum, eru ólöglegir jafnvel samkvæmt ísraelskum lögum, en samþykki þeirra og lögleiðing hefur aukist mikið á undanförnum árum.
„Við getum ekki horft fram hjá tölunum: 104 samfélög sem við stofnuðum og lögleiddum saman, og 160 býli, og fleiri eru á leiðinni,“ sagði Netanyahu á viðburði fyrir landnema seint í gær, samkvæmt yfirlýsingu frá skrifstofu hans.
Hann sagði við viðstadda: „Þið eruð að uppfylla sýn Ísraelslands, og þetta er landið okkar.“
„Þið eruð að undirbúa …