Nýliðinn júlímánuður er sá heitasti í Frakklandi frá því mælingar hófust árið 1900, samkvæmt frönsku veðurstofunni. Meðalhiti í landinu í mánuðinum var 24,9 stig. Það er 0,1 stigi meiri en í fyrri metmánuði, ágúst 2003.
Úrkoma mældist nærri 70% fyrir neðan meðaltal. Mánuðurinn var þriðji þurrasti júlí sem mælst hefur. Jarðvegur var því víða þurr og því fylgdu auknar líkur á skógareldum.
Hitabylgjur hafa farið hver á fætur annarri yfir Evrópu frá því í maí og valdið miklum skógareldum.
Önnur hitabylgja ársins gekk yfir Frakkland á milli 4. og 19. júlí. Það þykir óvenjulega langur tími. Í mánuðinum urðu þar mestu skógareldar í landinu frá 1949. Alls brunnu 42 þúsund hektarar, eða 420 ferkílómetrar, í skógareldum sem kviknuðu 22. júlí. Það er á stærð við fjórar Parísarborgir.