„Ég er fjögurra barna móðir sem upplifði mikla vanlíðan á þremur af fjórum meðgöngum mínum og fyrstu mánuðina eftir fæðingu barnanna minna. Ég elskaði þau út af lífinu en á sama tíma var ég stöðugt hrædd um að eitthvað hræðilegt myndi koma fyrir þau. Ég gerði ýmislegt til að koma í veg fyrir að það gerðist og lifði í því sem ég myndi kalla óttafangelsi.“
Heiðrún er á batavegi eftir sjaldgæfa röskun á þremur meðgöngum og eftir fæðingu - „Stal stórum hluta af gleðinni sem fylgir því að eiga ungbarn“