Donald Trump forseti Bandaríkjanna tók enga ákvörðun um drög að samkomulagi um stríðslok í Íran í gærkvöld, þó að hann hafi boðað slíkt fyrir fundinn. Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að þeir geti auðveldlega hafið stríðið að nýju.
Skilaboð frá Hvíta húsinu undanfarna daga hafa gefið til kynna að samkomulag við Íran sé í augsýn, þó að yfirvöld í Íran hafi ekki gefið það sama til kynna. Samningaferlið virðist hafa haldið þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi gert árásir á hafnarborgina Bandar Abbas fyrr í vikunni, sem var svarað með árásum Írana á bandarískar herstöðvar.
Heimildir AFP-fréttastofunnar herma að drög að samningi liggi fyrir sem bíði aðeins staðfestingar Trumps. Sá samningur myndi þýða 60 daga vopnahlé og að á meðan yrði rætt um framtíð kjarnorkuáætlunar Írana.
Trump boðaði í færslu á Truth Social í gær að ákvörðun yrði tekin á fundi í aðgerðarherbergi Hvíta hússins í gærkvöld um hvort samningurinn yrði staðfestur eða ekki. Eftir tveggja tíma fund lá þó engin ákvörðun fyrir.
Samningur verður alltaf góður samningur
Kröfur Trumps eru að Íran hafi aldrei kjarnorkuvopn í sinni vörslu, Hormússund verði opnað án takmarkana, tundurdufl í sjó verði fjarlægð og auðgað úran sem hefur legið niðurgrafið í Íran frá árás Bandaríkjanna í júní í fyrra verði grafið upp og því eytt.
Íranar hafa gefið þau skilaboð að þeir hafi hvorki samþykkt að hætta að auðga úran né ótakmarkaða umferð um Hormússund. Ekki sé búið að semja en viðræður haldi áfram.
Pete Hegseth varnarmálaráðherra, sem er staddur á asískri varnarmálaráðstefnu í Singapúr, sagði í gærkvöld að samningur við Íran yrði alltaf góður samningur. Bandaríkjamenn hefðu hins vegar getuna til að hefja stríðið að nýju þar sem þeir ættu nóg af birgðum til þess bæði í Bandaríkjunum og um allan heim.
Á sama tíma er ekkert lát á átökum í Suður-Líbanon. Ísraelsmenn hafa hvatt til rýmingar á fleiri þorpum þar vegna yfirvofandi árásar og Hezbollah-samtökin hafa skotið eldflaugum á þorp í Norður-Ísrael.