Paris Jackson, eina dóttir Michael Jackson, sagði siðferðislega áttavitann hverfa þegar hún drekkur áfengi. Jackson opnaði sig nýlega um hvernig fíknivandi hennar hafði áhrif á hegðun og persónuleika í viðtali í hlaðvarpinu Trying Not to Die með Jack Osbourne. Hún sagði hegðunina á meðan hún glímdi við áfengis- og vímuefnafíkn stundum hafa verið mjög ljóta.
Jackson talaði um að hafa verið alin upp við að vera góð og sýna öðru fólki virðingu, ekki endilega að þurfa að þóknast öllum, heldur að vera raunverulega hlý og tillitssöm manneskja. Hún nefndi sem dæmi að horfa í augun á fólki, spyrja þjóninn um nafnið hans og sýna öðrum virðingu í daglegum samskiptum.
Jackson lýsti því að hún hefði gengið í gegnum nokkur ár af sjálfshatri áður en hún náði að verða edrú. Hún hefur nú verið edrú í sex ár.
„Ég gæti hafa logið, svikið eða stolið, en ég vissi samt að ég hafði siðferðiskennd,“ sagði hún.
En þegar hún drakk áfengi fannst henni þessi siðferðiskennd hverfa.
„Þegar ég drekk fer það allt út um gluggann og ég verð mjög hefndarfull manneskja.“
Paris leitaði sér fyrst hjálpar vegna fíknar þegar hún var aðeins 17 ára gömul. Hún sagði einnig að hún hefði mjög ung fundið að eitthvað væri öðruvísi hjá sér en jafnöldrum sínum. Hún glímdi meðal annars lengi við sjálfsskaða áður en hún byrjaði að nota áfengi eða vímuefni, átti einnig erfitt samband við mat og glímdi við ofát sem barn.