Formaður Félags skipstjórnarmanna er þeirrar skoðunar að Ísland geti ekki gengið inn í Evrópusambandið nema full yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni séu tryggð til eilífðar.
Þetta segir formaðurinn, Árni Sverrisson, í samtali við Morgunblaðið.
Blaðamaður ræddi við Árna um það að Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, hefði í síðasta mánuði staðfest þá afstöðu sína að ríki sem gangi inn í sambandið þurfi að undirgangast sameiginlega fiskveiðistefnu þess.
Formaðurinn á ekki von á því að Ísland geti gert sér vonir um að fá varanlegar undanþágur frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins.
„Flestir félagsmenn okkar eru þeirrar skoðunar að það sé mjög vafasamt að þetta gangi eftir. Flestir okkar hafa mjög litla trú á því að það geti orðið en þegar stjórnvöld fullyrða slíkt velta menn fyrir sér hvað sé á bak við það. Ég hef allavega sagt ekkert annað í boði en að við höfum full og varanleg yfirráð yfir auðlindinni.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ítrekað sagt að undanþága sé skilyrði þess að Ísland gangi inn í sambandið.
Til þess að Ísland geti gengið inn í sambandið þyrftu öll 27 ríki sambandsins að samþykkja aðildarsamning Íslands og því gæti Ísland ekki gengið inn í sambandið ef Holland væri andvígt þeim samningi sem Íslandi byðist.
„Ég hef persónulega enga trú á því að ESB breyti fiskveiðistefnu sinni fyrir okkur Íslendinga og fái öll aðildarríkin til þess að samþykkja það. Ég er náttúrulega ekki við samningaborðið og þegar utanríkisráðherra fullyrðir að sambandið ætli að gera einhverjar breytingar sem gagnast okkur veit maður ekki hvað skal segja. Ég hef enga trú á því en ég veit það ekki,“ segir Árni.
Getur ekki hugsað það til enda
Telur þú að það hefði veigamikil áhrif á íslenskan sjávarútveg ef við færum inn í sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna?
„Ég skil ekki að nokkrum manni detti það í hug að fara að gefa eftir forræði okkar yfir fiskveiðiauðlindinni. Það er bara óskiljanlegt í mínum huga. Ég segi það bara aftur að ég tel að við getum ekki gengið inn í ESB nema við höfum full og varanleg yfirráð yfir auðlindinni til eilífðar,“ svarar formaðurinn.
Síðast þegar Ísland gekk til viðræðna við sambandið tókst ekki að opna þann kafla sem sneri að sjávarútvegi og því fór sem fór.
„Þessi frjálsi fjármagnsflutningur, að erlend fyrirtæki geti keypt sig inn í sjávarútvegsfyrirtækin hér, þá erum við búin að tapa yfirráðum yfir auðlindinni og ég get ekki hugsað þá hugsun til enda. Kollegar mínir í Bretlandi og Írlandi gjalda varhug við því að við förum þarna inn miðað við þeirra reynslu. Þar er sjávarútvegurinn veigaminni atvinnugrein en hér, þannig að við höfum meiri hagsmuni af sjávarútvegi en þær þjóðir sem eru innan ESB,“ segir Árni að lokum.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.