Dómur þess efnis var kveðinn upp í gær og birtur í dag. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga stúlkunni en sýknaður af annarri ákæru fyrir kynferðislega áreitni gagnvart annarri stúlku.
Hannes var upphaflega ákærður í nóvember síðastliðnum fyrir nauðgun með því að hafa tvisvar sinnum á árinu 2025 á leikskólanum haft önnur kynferðismök en samræði við stúlku. Hann hafi misnotaði freklega yfirburðarstöðu sína gagnvart stúlkunni, brugðist trausti hennar og trúnaði sem starfsmaður leikskólans og í annað skiptið jafnframt notfært sér að þannig var ástatt um stúlkuna að hún gat ekki spornað við verknaðnum sökum svefndrunga.
Þá var gefin út önnur ákæra á hendur honum í apríl og hún sameinuð málinu. Ekki hefur verið greint frá efni hennar áður. Hann var ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn stúlku en til vara fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa á árinu 2025 á leikskólanum í nokkur skipti bitið stúlkuna í rassinn. Hann var sýknaður af þeirri ákæru þar sem ekki var talið að háttsemi hans hafi verið kynferðislegs eðlis.
Fréttin verður uppfærð.