Er þetta meðal þess sem Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum staðfestir í tilkynningu. Þar kemur einnig fram að fjöldi tilkynninga um ölvun, eignaspjöll og annað í þeim dúr hafi borist lögreglu að formlegri dagskrá lokinni.
Nokkuð mikið hafi verið um að ungmenni væru ölvuð en í tilkynningunni segir þó að engin alvarleg slys hafi orðið á fólki um nóttina. Hátíðin var sem fyrr segir vel sótt en fjölskyldu- og menningarhátíðin fór fram í 25. sinn á dögunum. Meðal þeirra ríflega hundrað og fimmtíu dagskrárliða voru stórtónleikar og flugeldasýning.