Enski knattspyrnumaðurinn Raheem Sterling var handtekinn í gær vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna þegar hann klessti Lamborghini-bíl sinn.
Sterling var sleppt gegn tryggingu en málið er enn til rannsóknar.
Leikmaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, glæfralegan akstur, vörslu fíkniefna og að neita að gefa lögreglu sýni úr sér.
Er um fíkniefni sem lögreglan á Bretlandseyjum flokkar sem C-flokk, en í þeim flokki eru m.a. hin ýmsu róandi lyf og hlátursgas.
Sterling er leikmaður Feyenoord í Hollandi um þessar mundir en hann hefur verið langt frá sínu besta undanfarin ár.