Hamtramck – reynslan sem enginn ætlar að læra af

Geir Ágústsson skrifar:
Í litlu iðnaðarborginni Hamtramck í Michigan í Bandaríkjunum gerðist eitthvað sem kom mörgum í opna skjöldu. Borgin, sem eitt sinn var þekkt fyrir fjölmenningu og sterkan pólskan menningararf, tók á móti miklum fjölda innflytjenda frá múslímskum löndum, einkum Bangladess og Jemen. Á fáeinum áratugum breyttist lýðfræðileg samsetning íbúanna hratt.
Árið 2021 varð Hamtramck fyrsta borgin í Bandaríkjunum þar sem öll borgarstjórnin var skipuð múslimum (karlmönnum eingöngu, að sjálfsögðu). Tveimur árum síðar, árið 2023, samþykkti borgarstjórnin að banna Pride-fána á opinberum stöðum og takmarka notkun fána sem tengdust stjórnmálum, trúarbrögðum eða kynhneigð.
Margir sem áður höfðu stutt innflytjendur og fjölmenningu töldu sig svikna. Fyrir marga hefur sagan af Hamtramck orðið táknræn fyrir það hvernig hraðar lýðfræðilegar breytingar geta haft áhrif á gildi og stefnu samfélags, og þá sérstaklega þegar lýðfræðin fer úr vestrænni menningu í múslímska.
Þetta er ekki eina dæmið af þessu tagi þótt Bandaríkjamenn hafi hérna látið koma sér á óvart. Í Bretlandi og Frakklandi eru mörg samfélög í raun orðin múslímsk sem innfæddir voga sér varla inn í nema í hópum að degi til. Í Svíþjóð eru hverfi þar sem ekki sést sænskur krakki í skólanum og pósturinn veigrar sér við að sinna.
Reynslan af múslímavæðingu Evrópu og Vesturlanda er slæm, nær yfir langan tíma, hefur tekið gríðarlegan toll, kostar samfélagið mikið í formi velferðarútgjalda og glæpa, er ógn við réttindabaráttu Vesturlanda seinustu 100 ára, atlaga að gildum okkar og menningu og klýfur samfélög okkar í tvennt.
En það er eins og ekkert gerist, nema kannski í Danmörku og einstaka svæðum. Vissulega teikn á lofti og kjósendur eru víða farnir að kjósa til valda þá sem vilja snúa þessari þróun við og kannski taka upp dönsku eða pólsku leiðina til að verja samfélög sín en Evrópusambandið reynir að veikja þá rödd kjósenda - finna annmarka á kosningum og yfirvöld kæra frambjóðendur fyrir gallaða pappírsvinnu í bókhaldinu - en það er eins og það muni ekki duga til lengur.
Hamtramck er skólabókardæmi, en ekki einsdæmi. Hvaða íslenska sveitarfélag verður fyrsta Hamramck Íslands?