„Mér blöskrar þegar ég les fréttir þar sem menn eru að segja að þetta sé bara allt í góðu og komi engum á óvart,“ segir Hallgrímur Lárusson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Snælands Grímssonar, í viðtali í Morgunblaðinu í dag.Þar er fjallað um stöðu mála í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en Hallgrímur segir dæmi um að bílstjórar fyrirtækisins þurfi að bíða á þriðju klukkustund eftir að fólk lendir á vellinum og kemur út. Tengist þetta nýju komu- og brottfararkerfi farþega inn á Schengen-svæðið.
Hallgrímur fengið nóg: „Ef þetta væru Íslendingar væri allt orðið vitlaust“