Hálka og snjóþekja er á vegum á norðaustan- og austanverðu landinu.
Flughált er í Langadal á Möðrudalsöræfum og hálka á Vopnafjarðarheiði, Sandvíkurheiði, Brekknaheiði og Raufarhafnarvegi. Snjóþekja er á Hófaskarði og Háreksstaðaleið. Hálkublettir eru víða á Norðausturlandi.
Víða er hált á Austurlandi og á Vatnsskarði eystra og Jökuldal er snjóþekja. Krapi er á Heiðarenda, Öxi og Breiðdalsheiði.