Lágafellskirkja og Háteigskirkja hafa boðað til minningarstunda á morgun til að minnast ungmenna sem létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði aðfaranótt mánudags.
Minningarstundin í Lágafellskirkju er til að minnast Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Hún hefst klukkan 17:30. Þá verður Benjamíns Guðmundssonar minnst í bænastund í Háteigskirkju klukkan 18.
Arndís Halla var sextán ára, fædd 2009. Benjamín var fæddur 2005. Í slysinu lést einnig stúlka fædd 2007.
Ungmennin voru öll í bíl sem hafnaði utan vegar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur slysið til rannsóknar.