Hagnaður Emblu Medical, sem áður hét Össur, nam fjórum milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi sem samsvarar ellefu prósentum af veltu og jókst um 39% samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam sjö milljörðum króna og sala á ársfjórðungnum nam 32 milljörðum króna.
„Vöxturinn var fyrst og fremst drifinn áfram af kröftugum innri vexti í stoðtækjum, áframhaldandi góðu gengi í EMEA og APAC og góðum árangri nýrra vara,“ er haft eftir Sveini Sölvasyni, forstjóra Emblu Medical, í tilkynningu.
Hann segir vöxt af spelkum og suðningsvörnum hafa verið hóflegan en að tekjur af þjónustu við skjólstæðinga hafi lækkað á öðrum ársfjórðungi.
EBITDA-framlegð hækkaði um eitt prósentustig frá sama ársfjórðungi í fyrra. „Með hliðsjón af afkomu fyrri árshelmings og væntingum um sterkari vöxt á seinni hluta ársins höfum við þrengt fjárhagsáætlun ársins fyrir innri vöxt í 5–7%, en áætlun um EBITDA-framlegð helst óbreytt í 20–22%.“