Hægfara kólnun hagkerfisins heldur áfram. Arnaldur Sölvi Kristjánsson, lektor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir hagtölur sýna þetta. Hann segir þróunina svipaða og verið hefur síðustu misseri og að ekki sé um snöggkólnun að ræða.
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama fjórðung í fyrra, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Áætlað er að landsframleiðsla hafi dregist saman um 3% að raunvirði á milli fjórðunga.
Arnaldur segir halla á vöruviðskiptum einkum skýra samdráttinn. Það sé ekki síst vegna aukinna umsvifa í gagnaversiðnaði en þeim hefur fylgt mikil aukning í innflutningi. Á vef Hagstofunnar segir að met hafi verið sett á síðasta fjórðungi í fjárfestingu í gagnaverstengdum iðnaði.
Arnaldur segir þetta ef til vill stærstu tíðindin í nýbirtum þjóðhagsreikningum. Oft geti ein stór breyta, til dæmis loðnuveiðar eða loðnubrestur, haft mikil áhrif.
Áfram dregur úr einkaneyslu
Einkaneysla, sem er einn stærsti liðurinn í landsframleiðslunni, dregst áfram saman. Það geti bent til þess að háir stýrivextir hafi haft áhrif.
„Það er markmiðið með stýrivöxtum, að hægja á fjárfestingu og einkaneyslu,“ segir Arnaldur. „Þá er vonin sú að það, með tíð og tíma, leiði til þess að verðbólga hjaðni. Hún hefur svo sem ekki hjaðnað núna, svo það er spurningin hvernig hefði verðbólga verið ef stýrivextir hefðu verið lægri en þeir eru núna.“
Verðbólga jókst á milli mánaða og mældist 5,6% í ágúst. Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig í mánuðinum, upp í 8%. Spár benda til að hún hjaðni hægt á næstunni.
Fleiri keppast um þau störf sem eru í boði
Til viðbótar við þetta er að hægjast á vinnumarkaði. Atvinnuleysi fyrstu sjö mánuðina var 4,5% en var 3,9% í fyrra. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi fari aukandi næstu 12 mánuði.
„Það hægir töluvert á fjölgun starfandi og ef maður skoðar eftirspurn fyrirtækja eða ráðningaráform þeirra, þá hefur hægst töluvert á því. Fólk sem er án atvinnu, það verður erfiðara fyrir það að finna sér vinnu.“
Það sama eigi við um stöðu þeirra sem hafa hug á að skipta um vinnu.
„Það er minna um störf og fleira fólk sem er að keppast um þau lausu störf sem eru í boði.“