Héraðsdómur Reykjaness sýknaði Hafnarfjarðarbæ af skaðabótakröfu Jóns Rúnars Halldórssonar, fyrrverandi formanns FH. Hann krafðist bóta vegna þess að bærinn afhenti fjölmiðlum skýrslu Deloitte þar sem farið var yfir byggingu knatthúss félagsins, viðskipti þess við bæinn og aðkomu forystumanna félagsins.
Efni skýrslunnar vakti mikla athygli og umræðu á sínum tíma. Jón Rúnar taldi á sér brotið og krafði bæinn um 2,5 milljónir króna í bætur. Héraðsdómur sýknaði bæinn á fimmtudag. Dómurinn var birtur í gær.
Jón Rúnar sagði að í skýrslunni væri að finna ummæli í sinn garð sem væru röng, fælu í sér ærumeiðandi aðdróttun í hans garð og miska. Hann taldi að Hafnarfjarðarbær hefði brotið á sér með því að afhenda skýrsluna sem hann sagði að væri einungis til afnota fyrir bæinn.
Jón Rúnar sagði að þar sem fjallað væri um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklings félli skýrslan undir undanþágu frá upplýsingalögum um hvaða gögn skuli afhenda öðrum. Sama ætti einnig við um fjárhag fyrirtækja.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að meginregla upplýsingalaga sé að vernda upplýsingarétt almennings og tryggja gagnsæi við meðferð opinbers valds. Almennt eigi almenningur að eiga þess kost að fylgjast með því sem stjórnvöld aðhafist og frávik frá þeirri reglu verði ekki skýrð rúmt.
Dómarinn rekur síðan að FH og Hafnarfjarðarbær hafi samið um byggingu og rekstur knatthúss sem fjármagna ætti með kaupum bæjarins á húsinu. Í þeim samningi var sú skylda lögð á FH að halda sig innan fjárhagsáætlunar. Um þetta var fjallað í skýrslunni.
Dómari sagði að afhending skýrslunnar til fjölmiðla félli undir það markmið upplýsingalaga að styrkja traust almennings á stjórnsýslunni. Þar segir dómarinn að engu breyti þótt hún hafi verið merkt trúnaðarmál og ekki ætluð til dreifingar. Fjárhagslegir hagsmunir Jóns Rúnars og félaga í hans eigu gátu ekki rutt úr vegi hagsmunum almennings sem fólust í því að skýrslan væri afhent, sagði dómarinn. Þvert á móti mátti hann vera undir það búinn, starfa sinna vegna, að upplýsingarnar yrðu gerðar opinberar.