Jóhann Páll Jóhannsson umverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekkert samhengi á milli nýlegra lagabreytinga um jarðboranir og mengunar sem orðið hefur vart í Varmá í Mosfellsbæ. Hann segir borframkvæmdirnar sem ollu menguninni hafa farið fram á grundvelli leyfa sem voru gefin út áður en lagabreytingar voru samþykktar. „Það er ekki nokkur leið að álykta með skynsamlegum hætti um orsakasamband þarna á milli,“ skrifar Jóhann Páll í færslu á Facebook.
Landvernd skoraði í vikunni á stjórnvöld að falla frá lagabreytingunum. Í ályktun félagsins segir að breytingunum sé ætlað að greiða götu framkvæmdaaðila og að það sé óheillaspor að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna. Með flýtimeðferðum og afnámi eða veikingu eftirlits aukist áhætta á mengun.
Landvernd segir fulla ástæðu til að efla eftirlit
Davíð Arnar Stefánsson, varaformaður Landverndar, vakti athygli á ályktuninni í grein á Vísi sem bar yfirskriftina: „Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því“.
Þar sagði hann mengunina í Varmá og sambærilegt atvik í Krýsuvík undirstrika mikilvægi þess að gott eftirlit sé haft með jarðborunum og framkvæmdir stöðvaðar um leið ef eitthvað fer úrskeiðis. Því sé full ástæða til að efla eftirlitið og fyrirbyggjandi mengunarvarnir.
„Það skýtur því skökku við að rétt áður en þessi manngerðu mengunaratvik gerðust gengu í gegn laga og reglugerðarbreytingar af hálfu Umhverfis- orku og loftslagsráðherra á eftirliti með jarðborunum til að hraða framkvæmdum,“ skrifar Davíð.
Þá hætti heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna að hafa eftirlit með framkvæmdum þar sem þau verða lögð niður um næstu áramót. „Útgáfa starfsleyfa og eftirlit verður hins vegar fært með breyttu sniði yfir til Umhverfis- og Orkustofnunar sem virðist hins vegar engan veginn tilbúin til að taka við hlutverkinu eins og atvikið í Varmá sýnir,“ skrifaði Davíð.
Ráðherra segir þetta upplýsingaóreiðu
Þessari túlkun Davíðs og Landverndar hafnar Jóhann Páll, líkt og áður segir. Hann segir málatilbúnaðinn vera lið í „harðri og háværri baráttu sem nú er rekin gegn löngu tímabærri uppstokkun heilbrigðiseftirlits á Íslandi“. Ríkisstjórnin ætli ekki að hvika frá þeim áformum.
„Sumt leiðir maður hjá sér – og það má dást að því hve ötullega samtök eins og Landvernd halda stjórnvöldum og framkvæmdaaðilum á tánum – en það er ekki hægt að sitja þegjandi hjá þegar grafið er undan trausti gagnvart stofnunum, eftirlitsaðilum og regluverki með upplýsingaóreiðu af þessu tagi,“ skrifar ráðherrann.
Hann vekur athygli á tilkynningu ráðuneytisins frá í gær þar sem fjallað er um breytingarnar. Hann segir þær fela í sér einföldun regluverks en um leið skapa heildstæðara leyfisveitingarferli og skýrari ábyrgðarskiptingu en áður var. Með breytingunum verði yfirsýn yfir framkvæmdir betri og eftirlit markvissara.
„Þannig drögum við úr líkunum á að atburðir eins og þeir sem áttu sér stað í Varmá endurtaki sig,“ skrifar Jóhann Páll en hann undirritaði reglugerðarbreytingar sem tengjast lagabreytingunni í gær.