Greint var frá því í morgun að hins þrítuga Sindra Freys Jenssonar hafi verið saknað frá 23. maí síðastliðnum. Aðstandandi hans auglýsti eftir honum á Facebook-hóp fyrir erlenda ferðamenn á Pattaya-svæðinu.
Systir Sindra segist engar upplýsingar hafa fengið um bróður sinn frá því að auglýst var eftir honum. Ríkisútvarpið greinir frá því að annar aðstandandi hans hafi sagt hann hafa verið í fríi í Taílandi ásamt tvíburabróður sínum. Þeir séu báðir í óreglu og hafi orðið viðskila þennan dag.
Lögreglunni á Íslandi hafi verið gert viðvart. Vísir hefur beint fyrirspurn til utanríkisráðuneytisins vegna málsins.