Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir að við ráðningar á leikskóla séu kröfur gerðar um menntun, lipurð í samskiptum og reynslu af uppeldisstörfum.
Samstarfsfólk karlmanns sem var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum Múlaborg hafði ítrekað gert athugasemdir við hegðun hans.
Samkvæmt dómkvöddum matsmönnum er maðurinn haldinn barnagirnd.
Mat stjórnenda hvort umsækjendur uppfylla hæfniskröfur
Í dómnum kemur fram að maðurinn, Hannes Valle Þorsteinsson, sé með takmarkaðan vitsmunaþroska, sé félagslega einangraður, með veikan orðaskilning og á mörkum vægrar þroskahömlunar.
Dómskvaddir matsmenn telja hann þurfa verulegan sálfræðilegan stuðning við barnagirnd sinni, á meðan hann situr í fangelsi.
Hannes hafði enga reynslu af umönnun barna þegar hann var ráðinn til starfa á Múlaborg.
Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir að við ráðningar á leikskóla séu kröfur gerðar um menntun, hreint sakavottorð, lipurð í samskiptum og reynslu af uppeldisstörfum.
„Og ef að einhverjir uppfylla ekki þessar hæfniskröfur, allar, að þá er það mat stjórnanda á hverjum stað hvernig viðkomandi uppfyllir þá skilyrðin til að starfa með börnum.“
Samstarfsfólk Hannesar, sem bar vitni fyrir dómi, sagðist ítrekað hafa þurft að benda honum á að framkoma hans við börn í leikskólanum væri óeðlileg.
Eitt vitni lýsti atviki þar sem hann tók barn upp og hélt því á fótunum og annað vitni sagði frá atviki þar sem hann beit barn.
Ekki hægt að útiloka áhrif mönnunarvanda
Steinn segir ekki hægt að útiloka að mönnunarvandi hafi haft áhrif á ráðningar á leikskólum á þeim tíma sem Hannes var ráðinn til starfa.
Hann telur ekki að slakað hafi verið á kröfum við ráðningar en,
„Við getum aldrei útilokað hvernig einstaklinga við erum að ráða inn. Og þegar við erum að ráða fólk inn er farið í gegnum ákveðið ferli,“ segir Steinn.
Steinn segir mönnun leikskóla borgarinnar vera í góðum farvegi í dag og staðan sé önnur en hún var fyrir tveimur til þremur árum.
Auk samstarfsfólks höfðu foreldrar barna á Múlaborg lýst yfir áhyggjum og gert athugasemdir við framkomu og hegðun Hannesar í starfi. Þau hafa gagnrýnt stjórnendur leikskólans fyrir viðbragðsleysi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er leikskólastjóri Múlaborgar enn við störf.
Steinn segir að breytingar hafi verið gerðar á verkferlum, fræðsla til starfsfólks aukin og tekin upp ný mannauðsstefna eftir að málið kom upp.
Hann segir að starfsfólk sem er að koma nýtt inn til starfa njóti nú meiri leiðsagnar stjórnenda.
Nú eru gefnir allt að þrír dagar til fræðslu og þjálfunar áður en starf hefst að fullu, svokölluð blíð byrjun í starfi.
Á Skóla- og frístundasviði starfar nú auk þess vinnuverndarfulltrúi sem aðstoðar leikskólastjórnendur.
„Og þeir geta þá kallað hann til til að fara yfir hvernig við getum aukið öryggi í okkar starfsumhverfi og bætt og eflt starfsumhverfið. Ekki bara fyrir starfsfólk heldur líka fyrir börnin.“