Umdeild tillaga sænsku ríkisstjórnarinnar um að heimila að 13 ára börn verði sett í fangelsi hefur verið dregin til baka. Gunnar Strömmer dómsmálaráðherra Svíþjóðar segir þetta hafa verið ákveðið þegar í ljós kom að ekki væri meirihluti fyrir breytingunni á þinginu.
Tillagan vakti strax miklar deilur þegar hún var kynnt í vetur. Hún var viðbragð við því að glæpagengi eru í auknum mæli að ráða til sín börn yngri en 15 ára til að fremja glæpi, því ekki má setja þau í fangelsi samkvæmt gildandi lögum. Alls bárust 126 umsagnir um tillöguna. Í flestum þeirra var tillagan gagnrýnd eða beinni andstöðu við hana lýst. Meðal þeirra sem sendu inn umsögn voru bæði lögregla og fangelsisyfirvöld.
Lækkar í 14 ár í stað 13
Yfirvöld hyggjast í staðinn leggja fram nýja tillögu þar sem sakhæfisaldurinn verður lækkaður niður í 14 ár. Ráðgjafi stjórnvalda hafði upphaflega mælt með því en ríkisstjórnin ákvað þá að ganga lengra. Jafnaðarmenn, sem er stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, hefur þegar lýst yfir stuðningi við þessa breytingu og því er líklegt að meirihluti sé fyrir þeirri tillögu.
Stefnt er að því að þingið samþykki breytinguna í ágúst. Til stóð að fyrri breyting tæki gildi 1. ágúst en nýja breytingin tekur líklega gildi næsta vetur. Kapp er lagt á að málið verði samþykkt fyrir haustið, þegar þingkosningar fara fram í Svíþjóð.