Landsmenn mega víðast hvar búast við tiltölulega rólegu veðri í dag með fremur hægum vindi, þremur til átta metrum á sekúndu. Þó gætu orðið dálitlar skúrir á víð og dreif. Það er helst að veður bæri á sér vestast á Vestfjörðum þar sem útlit er fyrir hvassari norðanátt.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Breytileg átt 3-8 metrar á sekúndu, en heldur hvassari norðanátt vestast á Vestfjörðum fram eftir degi. Skýjað með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bætir í úrkomu í kvöld. Hiti yfirleitt 8 til 16 stig yfir daginn.
Hæg norðlæg eða breytileg átt á morgun. Víða rigning eða skúrir, en dregur úr vætu eftir hádegi og léttir til suðvestanlands. Hiti 7 til 14 stig, mildast sunnanlands.