„Ísland verður sennilega seint það öruggur áfangastaður að enginn okkar erlendu gesta muni lenda í óhöppum en við getum gert betur í að koma til þeirra upplýsingum,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Hann segir Ísland almennt huga vel að öryggi erlendra ferðamanna en alltaf megi gera betur. Borið hefur á gagnrýni á öryggisráðstafanir á fjölsóttum ferðamannastöðum eftir banaslys í Stuðlagili í vikunni.
Jón Þór segir Ísland eiga góðan farveg til upplýsingagjafar, Safetravel, sem nýta mætti betur. Safetravel er upplýsingamiðill, bæði á vef og í smáforriti, þar sem erlendir ferðamenn geta nálgast upplýsingar meðal annars um færð, veður og varasama áfangastaði.
Ósk Landsbjargar er að bæta viðmót Safetravel og auka sýnileika þess, meðal annars við komu til landsins og á áfangastöðum. Það, segir Jón Þór, er besta leiðin til að tryggja að upplýsingar sem eiga erindi við fólk komist til skila.
Samtök ferðaþjónustunnar drógu sig í hlé í Covid
Jón Þór bendir á að þegar Safetravel hóf göngu sína hafi það verið samstarfsverkefni Landsbjargar, ríkisins og Samtaka ferðaþjónustunnar. Í heimsfaraldrinum drógu Samtök ferðaþjónustunnar sig í hlé. „Og hafa því miður ekki komið á vagninn með okkur aftur. Þannig það vantar svolítið á. Við finnum fyrir því að þar er góður félagi farinn,“ segir Jón Þór.
Landsbjörgu þætti æskilegt að ferðaþjónustan tæki meiri þátt til að stuðla að öryggi ferðamanna. „Því við getum gert betur. Við getum komið fyrir upplýsingaskiltum á ferðamannastöðum og við getum bætt vefviðmótið og smáforritið.“