Hægt að aka bíl 56 metra á þeim tíma sem fólk les ein skila­boð - Vísir

Hægt að aka bíl 56 metra á þeim tíma sem fólk les ein skila­boð - Vísir

Hægt að aka bíl 56 metra á þeim tíma sem fólk les ein skila­boð - Vísir

Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, bendir á að nýjustu tölur Samgöngustofu frá 2025 sýni að farsímanotkun undir stýri hafi aukist á milli ára. Samkvæmt könnuninni segjast 39,4 prósent ökumanna lesa skilaboð við akstur og 31,1 prósent skrifa skilaboð. Það sé aukning frá árinu á undan og áhugavert í ljósi þess að í sömu könnun komi fram að 96 prósent telji hættulegt að skoða skilaboð undir stýri.

„Þetta snýst um þessa hegðun, svona rétt aðeins að kíkja í símann, sem svo margir kannast við. Að vera rétt aðeins að lesa skilaboðin eða rétt aðeins að skoða næsta TikTok-vídeó eða rétt aðeins að kíkja á stöðuna í leiknum. Það er þessi hegðun sem við höldum mörg að sé í lagi af því við erum bara rétt aðeins. En þetta er megnið af farsímanotkun okkar undir stýri, það er þetta rétt aðeins,“ segir Gunnar Geir.

Hann segir fólk lenda í hræðilegum slysum af því að það ætlaði bara rétt aðeins að kíkja í símann og endaði í staðinn á að aka á einhvern.

„Þannig að það er nálgunin, að vekja athygli á því að þetta rétt aðeins er ekki eins lítilvægilegt og kannski margir halda.“

Í tilkynningu um átakið kemur jafnframt fram að rannsóknir sýni að fólk sé allt að 23 sinnum líklegra til að lenda í umferðarslysi þegar það les eða skrifar skilaboð við akstur og talið sé að allt að fjórðung umferðarslysa megi rekja til farsímanotkunar. Þó svo að fólki finnist það aka hægt á til dæmis 40 kílómetra hraða fari bíllinn samt um 56 metra áfram á þeim fimm sekúndum sem það kannski tekur sér í að skrifa eða lesa stutt skilaboð.

Gunnar Geir segir þennan hæga akstur oft blekkja.

„Jafnvel bara á 30, þá ferðu yfir 40 metra, og sá akstur fer oft fram inni í hverfum, sem þýðir að það er töluverð hætta á því að það séu gangandi og hjólandi börn og fullorðnir þarna innan um. Ef við erum að keyra 40 metra án þess að líta upp, þá er ansi margt sem getur farið úrskeiðis.“

Hann segir tímasetningu herferðarinnar ekki endilega stílaða á sumarið, skilaboðin eigi við allt árið, en það sé klárlega þannig að núna séu fleiri hjólandi og gangandi en um vetur.

„Þessi hegðun sem fólk jafnvel telur sér trú um að sé í lagi er það ekki og við bendum á að þegar þú lánar símanum höndina, augun og heilann þá er ekki margt eftir til að keyra bílinn. Öll skilningarvitin eru farin og það veitir ekkert af skilningarvitunum þegar við erum að keyra, sérstaklega innan um börn og gangandi.“

Ein auglýsing herferðarinnar. Samgöngustofa/Sjóvá

Herferð sem hafi áhrif

Gunnar Geir telur mikilvægt að vekja athygli á þessum skilaboðum og það reglulega. Þau hafi til dæmis séð í herferð sinni um skjáhættu mælanlegan mun á hegðun fólks í umferðinni.

„Farsímanotkun undir stýri hafði verið að vaxa ár frá ári frá 2019. En árið sem við keyrðum þetta, 2024, þá sáum við töluverða fækkun bara í fyrsta skipti í kannski fimm ár. En strax árið eftir þá fór þetta aftur á verri veg. Þannig að við þurfum alltaf að vera að minna á þetta,“ segir hann og að í tengslum við nýja herferð um bílbeltanotkun muni einnig fara fram mælingar.

Gunnar Geir segir að þó svo að algengara sé að yngra fólk noti símann undir stýri sé það alls ekki algilt; það eigi við um flesta aldurshópa að gera það of oft.

„Notkunin er meiri hjá ungu fólki heldur en hjá þeim sem eldri eru en vandamálið þar er líka að það er hópurinn sem er kannski í meiri hættu. Hann er ekki búinn að öðlast svona rétt sjálfvirk viðbrögð, ef svo má segja, af reynslu. Þetta er ekki alveg komið í vöðvaminnið að bregðast rétt við þannig að ef eitthvað bregður út af þá er unga fólkið sem er með tiltölulega nýtt bílpróf í meiri hættu en aðrir,“ segir hann.

Allur aldur undir

Á hverju ári bætast um fimm til sex þúsund nýir ökumenn við umferðina og því er mikilvægt að fræðsla fari reglulega fram.

„En að því sögðu þá er allur aldur undir og hérna,“ segir hann og að það sé svo skrítið að það sé oft sama fólkið sem hefur mestar áhyggjur af börnunum sínum úti að hjóla eða nýjum ökumönnum sem svo eru að nota símann undir stýri. Það skipti því mjög miklu máli að vera góð fyrirmynd.

„Þegar börnin þeirra fara að taka bílpróf þá held ég að langflestir foreldrar séu hræddir um að krakkarnir grípi í símann við akstur af gömlum vana. En ef krakkarnir hafa alist upp við það að foreldrarnir geri þetta þá er mjög erfitt að segja þeim að gera þetta ekki. Börnin gera bara það sem þau sjá, ekkert endilega það sem þeim er sagt að gera.“

Gunnar Geir segir herferðina þannig eiga að varpa ljósi á þennan vanda, þegar fólk er aðeins rétt að kíkja, en getur þá valdið miklum skaða.

„Stóra vandamálið er ekki að fólk sé kannski að horfa í símann í 30 sekúndur í senn. Þegar við erum rétt að kíkja þá eru heilinn og augun farin og við höldum að við kunnum að multítaska en það er bara ekki þannig. Það er ekki til neitt sem heitir að multítaska, við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann.“

Gunnar Geir segir starfsfólk Samgöngustofu reglulega skrá inn slys sem eigi sér stað með þessum hætti og einhver þar sem ekið hefur verið á barn.

„Áfallið sem börnin verða fyrir og ökumaðurinn getur fylgt þeim ansi lengi.“

#aka #bíl #hægt #metra #þeim

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892791d/haegt-ad-aka-bil-56-metra-a-theim-tima-sem-folk-les-ein-skilabod

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 0
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 0
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 0
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 0
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 0
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 0
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 2
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólan...
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Su...
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
Rúmenskar F-16 orrustuþotur skutu niður tvo dróna sem flugu yfir Svartahafi innan rúmenskrar landhelgi í gær. Þetta hefur þýski fréttamiðillinn Deutsc...
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
📅 18.10.2026 👁️ 3
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
BBC News hears from users, dealers, prison and recovery workers as the country battles with a deadly new drug epidemic.
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 5
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 5
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun

Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 4
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Several dead or injured in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 2
Several dead or injured in major fire at Canada military base
Officials have not given a cause or death toll, citing the "very active and delicate" situation at Canadian Forces Base Wainwright.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 4
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 4
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
How The Traitors' music plays with your emotions
📅 18.10.2026 👁️ 3
How The Traitors' music plays with your emotions
It's not just treachery and villainy - the soundtrack for Traitors helps set the show's campy tone.
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
📅 18.10.2026 👁️ 2
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndi...
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 4
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 5
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...