Kuldi og snjókoma verða í aðalhlutverki í veðrinu í dag og á morgun. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Norðurlandi eystra, Austurlandi, Austfjörðum og miðhálendinu vegna snjókomu. Sú fyrsta tekur gildi á Norðurlandi eystra í hádeginu og hinar síðdegis. Veðrinu slotar á morgun, fyrst á Norðurlandi eystra í fyrramálið en ekki fyrr en annað kvöld fyrir austan og á miðhálendinu.
Snjórinn verður í fyrstu á heiðum en nær niður að sjó í kvöld. Aðstæður á fjallvegum gætu orðið varasamar fyrir bíla á sumardekkjum.
Veðrið verður skaplegra annars staðar. Þó má búast við rigningu sunnanlands en minna fellur úr lofti á landinu vestanverðu.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu, en tíu til fimmtán norðvestantil á landinu og með suðausturströndinni. Rigning, slydda eða snjókoma norðaustan- og austanlands, mörk rigningar og snjókomu færast neðar þegar líður nær kvöldi. Búast má við rigningu sunnanlands, en úrkomuminna um landið vestanvert. Hiti frá 2 stigum í innsveitum norðaustanlands, upp í 12 stig á Suðvesturlandi.
Norðaustan 8-15 á morgun. Rigning með köflum á sunnanverðu landinu, en slydda eða snjókoma norðan- og austantil. Úrkomulítið norðvestanlands. Hiti 1 til 9 stig, mildast vestast á landinu.