Gular viðvarnir vegna snjókomu eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Miðhálendinu fram til kvölds.
Í dag verður norðaustan 8-15 m/s. Það verður slydda eða snjókoma norðaustan- og austanlands með hita á bilinu 0 til 3 stig. Á sunnaverðu landinu má búast við rigningu en þurrt verður að mestu norðvestantil. Hitinn á þessum stöðum verður á bilinu 5 til 10 stig.
Á morgun er spáð norðaustan 5-10 m/s með rigningu eða slyddu á köflum norðaustan- og austanlands, dálítil væta verður af og til sunnantil en yfirleitt þurrt um landið norðvestantil. Hitinn verður frá 2 stigum í innsveitum norðaustantil upp í 12 stiga hita á Vesturlandi.