Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Norðurlandi eystra, Austurlandi, Austfjörðum og miðhálendinu vegna yfirvofandi snjókomu í innsveitum og á heiðum.
Fyrsta viðvörunin tekur gildi á Norðurlandi eystra í hádeginu í dag en á vef Veðurstofunnar segir:
„Norðaustan kaldi og snjókoma með köflum í innsveitum og á heiðum, einkum austantil á svæðinu. Snælínan verður í um 100-200 metra hæð eftir hádegi á fimmtudag, en um kvöldið og nóttina líkur á snjókomu eða slyddu á láglendi. Bændur eru hvattir til að huga að lambfé. Einnig geta aðstæður á fjallvegum orðið varasamar fyrir ökutæki á sumardekkjum.“
Svipað verður uppi á teningnum á Austurlandi og Austfjörðum en viðvaranir taka gildi þar um og upp úr miðjum degi. Á Norðurlandi eystra gildir viðvörunin til klukkan 9 í fyrramálið en á Austurlandi og Austfjörðum gildir hún þar til annað kvöld.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að gular viðvaranir séu gefnar út því óvenjulegt sé að fá snjókomu á þessum árstíma.
„Ferð á fjallvegum á norðaustanverðu landinu gæti orðið varasöm, einkum fyrir ökutæki á sumardekkjum, og gott væri að kanna ástand á vegum í landi á umferdin.is áður en lagt er af stað,“ segir veðurfræðingur.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðaustan 8-15 m/s. Þurrt að mestu norðvestan- og vestanlands. Rigning sunnanlands. Slydda eða snjókoma austan- og norðaustantil. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðvesturlandi.
Á laugardag:
Norðaustan 5-13. Rigning sunnanlands, en rigning eða slydda með köflum norðaustan- og austanlands. Bjart að mestu vestan- og norðvestantil. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
Á sunnudag:
Norðaustan 5-13 og dálítil rigning, en lengst af þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti 3 til 13 stig, svalast í innsveitum norðaustantil.
Á mánudag og þriðjudag:
Fremur hæg breytileg átt, skýjað og dálítil væta í flestum landshlutum. Hiti 6 til 11 stig,
Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðlæga átt. Skýjað og lítilsháttar rigning norðanlands, en bjart með köflum og stöku skúrir sunnan heiða. Hiti 7 til 12 stig.