Karlmanni hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 17. september, en hann hefur setið í gæsluvarðhaldi óslitið frá 16. júní. Maðurinn [hér eftir kallaður kærði] er grunaður um brot í nánu sambandi, þar með talið ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, umsáturseinelti, líkamsárás og hótanir. Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Grunaður um grófar ofsóknir gegn fyrrverandi sambýliskonu - Notaði hauskúpur og voodoo-dúkkur í sviðsetta bölvunarathöfn