Karlmaður á fertugsaldri var gripinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þegar hann sótti tvær Fedex-póstsendingar í Hafnarfirði sem innihéldu tæplega hálft kíló af kókaíni hvor.
Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að fleiri séu grunaðir í málinu og að málið sé til rannsóknar.
Handtakan fór ekki fram hjá vegfarendum en lögregla kom aðvífandi á nokkrum lögreglubílum um þrjúleytið á föstudaginn. Um leið og maðurinn sótti sendinguna á starfsstöðvar Fedex á Selhellu í Hafnarfirði var maðurinn handtekinn.
Ekki óvanalegt
Í kjölfarið var gerð leit í ökutæki mannsins áður en lögregla yfirgaf vettvanginn.
Spurður segir Ævar Pálmi ekki óvenjulegt að póstsendingar innihaldi svo mikið magn af fíkniefnum og að sendingin hafi borist frá Evrópu.
„Þetta er alls ekkert nýtt hjá okkur og í raun ekkert óalgengari smyglleið en hver önnur,“ segir Ævar Pálmi.