Maður og kona voru handtekin á Keflavíkurflugvelli í maí fyrir að reyna að smygla rúmum 18 kílóum af kókaíni til landsins. Það er eitthvert mesta magn kókaíns sem reynt hefur verið að smygla um Keflavíkurflugvöll.
Konan hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp. Landsréttur staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir henni 13. júlí. Hún er erlendur ríkisborgari sem hefur engin tengsl við landið og er því talin hætta á því að hún reyni að komast úr landi fái hún að ganga laus á meðan mál hennar er til meðferðar.
Kvaðst ekki hafa vitað af fíkniefnunum
Tollverðir höfðu afskipti af konunni þegar hún kom til Íslands. Jákvæð svörun á ketamíni og kókaíni kom á vegabréfi hennar og í kjölfarið voru töskur hennar og manns sem hún sagði kærasta sinn settar í gegnumlýsingarvél. Þá fannst massi undir fölskum botni í töskunum sem gaf jákvæða svörun á kókaíni.
Lögreglan handtók fólkið sem var flutt á lögreglustöðina við Hringbraut þar sem þau voru vistuð í þágu rannsóknar málsins.
Tæknideild lögreglunnar greindi fíkniefnin og komst að því að um rúm 18 kíló af kókaíni væri að ræða. Í dómnum segir að magn og styrkleiki efnanna bendi til þess að þau hafi verið ætluð til sölu og dreifingar.
Í skýrslutöku kvaðst konan ekki hafa vitað af fíkniefnunum í töskunni og gat ekki útskýrt þau.