Bandaríski leikarinn Neal McDonough segir að hann hafi misst bæði heimili sitt og starfsferil um tíma eftir að hafa neitað að kyssa mótleikkonu sína við tökur á sjónvarpsverkefni.
Þetta kom fram í nýlegu viðtali við Fox News Digital þar sem hann rifjaði upp eitt erfiðasta tímabil ævi sinnar.
McDonough, sem er sextugur og meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Desperate Housewives, sagði að hann hefði verið rekinn úr verkefni vegna afstöðu sinnar og að í kjölfarið hefði Hollywood snúið baki við honum.
„Enginn vildi ráða mig því fólk hélt að ég væri einhver trúarofstækismaður,“ sagði hann og bætti við að ákvörðunin hefði fyrst og fremst snúist um ást og virðingu fyrir eiginkonu hans, Ruve McDonough.
Leikarinn viðurkenndi einnig að áfengisneysla hans hefði farið úr böndunum á þessum tíma. „Ég missti húsið, missti bílana, missti allt,“ sagði hann í viðtalinu.
McDonough sagði að hann hefði fundið fyrir mikilli skömm gagnvart fjölskyldu sinni og talið sig hafa brugðist eiginkonu sinni og börnum þeirra fimm.
Hann sagði vin sinn, leikarann Luke Perry, hafa hjálpað fjölskyldunni þegar mest á reyndi með því að leyfa fjölskyldunni að búa hjá sér eftir að þau misstu heimili sitt.
Samkvæmt McDonough varð vendipunkturinn þegar eiginkona hans setti honum úrslitakosti.
„Hún sagði: Það eru annaðhvort við eða flaskan – þú velur,“ rifjaði hann upp og sagðist aldrei hafa snert áfengi eftir það.
Í dag starfar McDonough ásamt eiginkonu sinni við kvikmyndaframleiðslu og kveðst hann vera henni ævinlega þakklátur – hún hafi bjargað honum bæði faglega og persónulega.
McDonough er nú að kynna kvikmyndina „Jimmy“, sem fjallar um líf leikarans Jimmy Stewart. Myndin kemur út 6. nóvember og er gerð til heiðurs Stewart á 118 ára fæðingarafmæli hans.