Forsvarsmenn gagnaversins Borealis Data Center eru stórhuga í uppbyggingu á Blönduósi. Stefnt er á allt að hundrað milljarða uppbyggingu á næstu árum. Það var staðfest í dag þegar að Landsvirkjun og Borealis kynntu nýjan langtímasamning um kaup á 12 megavöttum af raforku, til viðbótar við núverandi kaup gagnaversins.
„Okkar fjárfesting í gagnaverinu og gagnaversinnviðum sem núna er í vinnslu er um 20 milljarðar. En ef þú bætir tölvunum við er hægt að fjór- eða fimmfalda þá upphæð,“ segir Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis.
Þróun gervigreindar eykur eftirspurn
Gagnaver á Íslandi veita gervigreindarfyrirtækjum þjónustu í síauknum mæli og ekki sér fyrir endann á þeirri eftirspurn. „Þegar fólk er að biðja ChatGPT um einhver ráð eða fara yfir einhver skjöl fyrir sig er verið að nota þessi stóru módel til þess framkvæma reikninga miðað við fyrirspurnina. Þetta kallast infrencing og þetta er í auknum mæli að eiga sér stað í gagnaverum eins og okkar,“ segir Björn. Gervigreindarfyrirtæki hafi tekið við af eldri viðskiptavinum gagnavera á Íslandi. Eitt sinn hafi stærstu viðskiptavinir gagnavera verið þeir sem stunduðu rafmyntargröft en nú sé öldin önnur.
Mikilvægt að sporna við neikvæðri íbúaþróun
Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 27 á fyrsta fjórðungi ársins. Björn segir að samvinnan við Húnabyggð hafi verið góð og uppbygging Borealis gæti spornað gegn fólksfækkun.
Ég ætla að við séum orðnir krítískur aðili fyrir svæðið varðandi starfsfólk og uppbyggingu. Það eru náttúrlega gríðarlega mörg störf sem verða til á uppbyggingartíma. Í þessum framkvæmdum sem við erum að hefja núna, við reiknum með að það verði um 150 eða fleiri á staðnum á hverjum degi á framkvæmdatíma og hann mun vera talsvert langur þessi framkvæmdatími.