Ökuþórinn Joey Mawson hefur verið ákærður fyrir að nauðga hjúkrunarfræðingi Michaels Schumachers í tvígang á heimili fyrrverandi Formúlu 1-heimsmeistarans.
Meintar nauðganir áttu sér stað í teiti í nóvember árið 2019 en enginn úr Schumacher-fjölskyldunni var viðstaddur gleðskapinn.
Mawson er sakaður um að hafa nýtt sér ástand hjúkrunarfræðingsins, sem var með skerta meðvitund sökum áfengisdrykkju.
Mawson neitar sök og segir að samþykki hafi legið fyrir, sem hjúkrunarfræðingurinn neitar.
Lögfræðingur hjúkrunarfræðingsins hrósaði henni í hástert í dómsal og ræddi m.a. um vinnu hennar með Schumacher, sem var mjög krefjandi.
„Það er ótrúlega krefjandi starf að sjá um Schumacher, bæði líkamlega og andlega. Það er skiljanlegt að fjölskyldan vilji halda ástandi hans leyndu.
En fyrir starfsfólk eins og skjólstæðing minn, sem má ekkert segja, er það ótrúlega mikið aukaálag. Hún var alltaf mætt til að hjálpa,“ sagði hann m.a.