Boðað hefur verið til þingfundar klukkan 10:30 í dag þar sem meðal annars verða til umræðu þingsályktunartillaga forsætisnefndar um hvernig skuli minnast 1100 ára afmælis Alþingis árið 2030 og frumvörp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla og um gjaldtökuheimildir opinberu háskólanna.
Hið síðarnefnda felur í sér heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum sem koma utan EES.
Þá eru tvær atkvæðagreiðslur sem snúa að vernd og orkunýtingu á dagskrá þingsins.
Fjármálaáætlun næstu fimm ára var samþykkt í miklum ágreiningi á þinginu í gær. Stefnt er á að ljúka þingstörfum í þessari viku.