Starfsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefur verið verulega takmörkuð í að verða mánuð eftir að mygla greindist í húsnæði starfseminnar í byrjun ágúst. 790 börn með alvarlegar þroskaskerðingar eru á biðlista eftir þjónustu hjá stöðinni, þar af 770 á biðlista eftir greiningu.
Sigurbjörg Fjölnisdóttir, forstjóri Ráðgjafar- og greiningarmiðstöðvar, segir að vonir séu bundnar við að nýjar fregnir af húsnæðismálum berist eftir helgi.
Í venjulegu árferði tekur stöðin átta börn með alvarlegar þroskaskerðingar í greiningu á viku. Sigurbjörg segir flókið að taka börn inn til greiningar vegna skorts á viðeigandi húsakosti, því starfsfólk hafi unnið heiman frá sér frá 7. ágúst.
Í ágústmánuði var starfsemi stöðvarinnar takmörkuð við fjögur börn í greiningu á viku. Í þessari viku hafa foreldrar verið upplýstir um að ekki sé hægt að taka á móti börnum þeirra í greiningu, en að nýr tími verði fundinn eins fljótt og auðið er.