Leikarinn og leikstjórinn George Clooney telur að breski leikarinn Callum Turner sé kjörinn til að taka við hlutverki James Bond af Daniel Craig.
Mikil spenna ríkir um hver muni taka við hlutverki njósnara hennar hátignar í næstu Bond-mynd, sem verður leikstýt af Denis Villeneuve. Ýmis nöfn hafa verið nefnd til sögunnar, þar á meðal Jacob Elordi, Harris Dickinson og Jack Lowden.
„Ég vona að Callum endi með að verða næsti Bond. Ég held að hann yrði frábær Bond,“ sagði Clooney í viðtali við The Hollywood Reporter.
Clooney og Turner unnu saman við gerð kvikmyndarinnar The Boys in the Boat árið 2023 og virðist Clooney sannfærður um að hinn 36 ára gamli leikari hafi allt sem þarf til að feta í fótspor Craigs.
„Hann er hár, myndarlegur, heillandi og breskur,“ sagði Clooney um Turner.

Turner hefur þó sjálfur lítið viljað tjá sig um vangaveltur þess efnis að hann gæti orðið næsti Bond. Í samtali við sama miðil sagði hann að hann vissi ekkert meira um málið en aðrir.
„Ég veit jafn mikið og þú – í alvöru, ég veit jafn mikið og þú,“ sagði hann.
Leikarinn, sem er þekktur fyrir hlutverk sín í þáttunum The Capture og kvikmyndaröðinni Fantastic Beasts, sagðist jafnframt finna fyrir miklum áhuga fólks á málinu.
„Það sem er svo fyndið við Bond-málið er að jafnvel bestu vinir þínir spyrja þig. Fólk sendir þér skilaboð sem þú hefur ekki talað við í tíu ár – og þú veist ekkert,“ sagði Turner og bætti við að honum þætti staðan fremur skopleg.
Leit stendur enn yfir að leikara í aðalhlutverkið eftir að Daniel Craig ákvað að láta staðar numið. Hann lék James Bond í fimm kvikmyndum, frá Casino Royale árið 2006 til No Time to Die árið 2021. Frá því hann kvaddi hlutverkið hafa stöðugar vangaveltur verið uppi um hver taki við sem frægasti njósnari kvikmyndasögunnar.