Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði Írönum enn harðari árásum en áður á meðan á samningafundi sendinefnda ríkjanna stóð í Sviss í dag. Viðræðurnar þóttu ganga vel og Íranar segjast ætla að halda þeim áfram þrátt fyrir hótanir Trumps.
Bandaríkin og Íran hafa gefið sér sextíu daga til að skipuleggja útfærslu á samkomulagi til að leysa deilumál ríkjanna eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar. Samkomulagið felur í sér að bardögum verði hætt á „öllum vígstöðvum“, þar á meðal í Líbanon, og að Hormússund verði opnað aftur. Fulltrúar stjórnvalda í Pakistan og Katar miðluðu málum.
Eitt helsta bitbeinið í viðræðunum hefur verið árásir Ísraelshers á Líbanon. Varaforseti Bandaríkjanna sagði að þokast hefði í þá átt að tryggja vopnahlé þar. Einnig er rætt um opnun Hormússunds en Íranar tilkynntu um lokun sundsins í gær í kjölfar áframhaldandi árása Ísraela á Líbanon.
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði eftir samningafundinn að nú væri spurningin hve miklu þjóðirnar gætu komið í verk saman.
„Getum við snúið við blaðinu? Getum við breytt samskiptunum í Mið-Austurlöndum varanlega eða snúum við aftur á sömu braut? Það viljum við síður en það getur vissulega gerst.“
Annar tónn í Trump
Eftir að viðræðurnar hófust birti Donald Trump færslu á Truth Social þar sem hann hótaði enn harðari árásum en áður beindu Íranar ekki tilmælum til fulltrúa sinna úr röðum Hezbolla í Líbanon um að láta af átökum. Í símaviðtali við Fox News sagðist hann svo íhuga að taka yfir Hormússund ef ekki tækist að semja við Írana.
Aðalsamningamaður Írana sagði ummælin örvæntingarfull. Hann hvatti Bandaríkjamenn til að gæta orða sinna og sagði Írana reiðubúna að svara árásum Bandaríkjanna á annan hátt en áður.
Þrátt fyrir hótanir Trumps virðast viðræðurnar vera á réttri leið og verður þeim að óbreyttu haldið áfram. Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, lýsti því yfir í dag að einhugur væri meðal stjórnvalda um að halda viðræðum við Bandaríkin áfram.