Vegna framkvæmda á gatnamótum Kringlunnar og Listabrautar er búið að afmarka og loka vinnusvæði út fyrir gangstétt og því hafa gangandi vegfarendur gripið til þess ráðs að ganga á bílaakrein til að komast á milli Kringlunnar og Kringlumýrarbrautar.
Vegfarendum er bent á hjáleið sem liggur frá Kringlu, yfir ljósastýrð gatnamót á Listabraut og svo til hægri með Listabraut að Kringlumýrarbraut.
Í svari borgarinnar vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins kemur fram að búið sé að veita framkvæmdaaðila afnotaleyfi af borgarlandi þar sem fyrirhugaðar byggingar munu ná út í lóðamörk. Í leyfinu kemur fram að framkvæmdin hafi áhrif á vegfarendur og að hluti af akbraut verði girtur af sem hluti af framkvæmdasvæði, að gerðar verði hjáleiðir fyrir gangandi vegfarendur og að gæta skuli þess sérstaklega að þær séu vel merktar og merkingar sýnilegar.