Landssamband hestamannafélaga skorar á ráðamenn að endurskoða fjárframlög til reiðvega. Í yfirlýsingu segir að skortur á fjármagni í málaflokkinn ógni öryggi hestamanna. Verði ekkert aðhafst sé Alþingi að bregðast þúsundum hestamanna og láta elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Samkvæmt samgönguáætluninni sem ríkisstjórnin samþykkti í vor verður árlegt framlag ríkisins til reiðvegamála hundrað milljónir króna næstu fimmtán árin. Það er þriðjungur þess framlags sem starfshópur, sem skipaður var af innviðaráðherra árið 2022, lagði til.
Linda Björk Gunnlaugsdóttir, formaður Landssambands hestamannafélaga, segir upphæðina í samgönguáætlun til ársins 2040 ekki standast skoðun. Annaðhvort verði að tengja framlagið við vísitölu eða endurskoða upphæðina.
Hún ræðir málið á Hljóðvegi 1.
Reiða sig á sjálfboðavinnu
Samanlagt spanna reiðvegir landsins tuttugu þúsund kílómetra. Margir liggja samhliða þjóðveginum og eru hestamenn oft í návígi við þunga umferð bíla, sem býður hættunni heim ef reiðvegir eru orðnir lélegir.
Að sögn Lindu hafa hestamannafélög þurft að reiða sig á mikla sjálfboðaliðavinnu bænda og hestamanna til að sinna nauðsynlegasta viðhaldinu þar sem fjármagnið frá ríkinu dugar ekki til. Þá hafa sveitarfélög einnig stutt við bakið á hestamönnum.
Fjárframlagið til reiðvegamála hefur auk þess rýrnað mjög síðustu ár ef tekið er mið af vísitölunni. Sem dæmi var framlagið árið 2009 70 milljónir króna, sem væri um 143 milljónir króna í dag samkvæmt verðlagsreiknivél Hagstofunnar.
Linda segir ekki hægt að halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu með því fjármagni sem nú sé í boði.
„Við þurfum að halda þessu við ef við ætlum að halda áfram að stunda hestamennsku eins og hún er stunduð í dag,“ segir hún.
Spyr hvers vegna ráðleggingum var ekki fylgt
Árið 2022 skipaði Sigurður Ingi Jóhannsson þáverandi innviðaráðherra starfshóp til að fara yfir stöðu reiðvegamála og leggja fram tillögur um framtíðarfjármögnun þeirra. Hópurinn lagði til að hóflegt árlegt framlag ríkisins til reiðvega yrði 300 milljónir króna.
Að mati LH má ekki sjá á samgönguáætlunni að farið hafi verið eftir ráðleggingum hópsins að nokkru leyti.
„Af hverju var ekki farið eftir ráðleggingunum? Það er verið að gera vinnuhóp til þess að komast að einhveri niðurstöðu. Það er algjörlega galið að það sé ekki hlustað á vinnuhóp sem var stofnaður af innviðaráðherra,“ segir Linda.
Hlusta má á viðtalið við Lindu Björk í spilaranum hér að neðan.