Götubitinn kynnir með stolti RVK BBQ Festival 2026, fyrstu matarhátíðina á Íslandi sem helguð er BBQ- og reykmatargerð. Hátíðin fer fram helgina 30. og 31. maí 2026 í hinu sögufræga húsnæði Kolaportsins í hjarta Reykjavíkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Götubitanum.
Með yfirskriftinni „Reykur. Eldur. Stemning.“ sækir RVK BBQ Festival 2026 innblástur til stórra erlendra matarhátíða á borð við Meatopia í London. Markmiðið er að leiða saman færustu grillara landsins, spennandi framleiðendur og matgæðinga í einstakri upplifun þar sem eldurinn er í aðalhlutverki.
Hátíðin hefst klukkan 12.00 báða dagana. Á laugardeginum stendur hún til klukkan 21.00 en henni lýkur klukkan 18.00 á sunnudeginum.
„Matarviðburðir skipa stóran sess í lífi fólks“
„Ég veit ekki alveg hvers vegna ég hef svona mikla ástríðu fyrir matartengdum upplifunum, en allt frá árum mínum í Verzlunarskólanum, þegar ég var að kynna rappið fyrir fólki, hef ég haft mikinn áhuga á að færa eitthvað nýtt og ferskt inn í landið,“ segir Róbert Aron Magnússon, framkvæmdastjóri Götubitans.
Eftir að hafa búið um árabil í Bretlandi og síðar flutt aftur til Íslands segist Róbert hafa tekið eftir því að matartengdir viðburðir væru ekki mjög áberandi hér á landi.
„Matarviðburðir skipa stóran sess í lífi fólks, til dæmis í London. Ég byrjaði mjög smátt, en svo hafa hlutirnir undið upp á sig. Mig hefur lengi langað til að setja BBQ-hátíð sem þessa á dagskrá, því við erum mikil grillþjóð og hér telja sig margir vera grillmeistara, hver á sinn hátt. Svona matarhátíðir sameina fólk og skapa tilefni til að koma saman og spjalla yfir góðum mat og drykk,“ segir Róbert og brosir.
Ástríðufullir grillarar láta ljós sitt skína
Á RVK BBQ Festival 2026 munu koma saman helstu grillarar landsins til að sýna listir sínar. Þar mætast bæði þekkt nöfn úr bransanum og ástríðufullir áhugagrillarar sem hingað til hafa fyrst og fremst látið ljós sitt skína í heimagörðum landsmanna að sögn Róberts.
Til viðbótar við matarveisluna verður glæsileg Weber-grillsýning á svæðinu þar sem gestir geta kynnt sér nýjustu grillin frá merkinu. Þá setur Sælkerabúðin upp sérstaka „pop-up“-verslun á hátíðinni, þar sem hægt verður að nálgast ýmislegt sem tilheyrir grillsumrinu úr fjölbreyttu vöruúrvali verslunarinnar.
Nánari upplýsingar má finna hér.


