55 félagar í Samfylkingunni og óflokksbundnir jafnaðarmenn mótmæla lögum um brottvísunarbúðir í aðsendri grein á Vísi í dag og krefjast þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð þar til tryggt verði að börn verði ekki svipt frelsi sínu vegna stöðu foreldra sinna.
„Þessi krappa hægri beygja í stefnu flokksins hefur ekki verið rædd á vettvangi flokksins og er að okkar mati í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið,“ segir í greininni.
Greinarhöfundar segja rétt að doka við og íhuga pólitíska vegferð sem sé í andstöðu við sjónarmið mannréttindasamtaka og sjónarmið mannúðar og mildi á meðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins hrósi Samfylkingunni fyrir sinnaskiptin. Fólkið krefst þess jafnframt að málið verði tekið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins.
Greinin ber fyrirsögnina „Ekki í okkar nafni“. Meðal þeirra sem skrifa undir eru Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og fjármálaráðherra í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, og Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður flokksins. Einnig Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar, og Nicole Leigh Mosty, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, þær gengu báðar síðar til liðs við Samfylkinguna.
Undir greinina skrifa líka Stein Olav Romslo, nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins, Guðmundur Rúnar Árnason, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, Margrét Gauja Magnúsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og varaþingmaður Samfylkingarinnar, og Sabine Leskopf, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs vegna áherslubreytinga flokksins í málefnum innflytjenda.
Þar er einnig að finna nöfn manna sem störfuðu á grundvelli R-listans. Það eru þeir Hrannar Björn Arnarson, fyrrverandi borgarfulltrúi R-listans og eiginmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur fyrrverandi borgarstjóra úr röðum Samfylkingarinar, og Stefán Jón Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi flokksins og fyrsti formaður framkvæmdastjórnar flokksins.