Fyrirtæki enska milljarðamæringsins Jims Ratcliffe hefur keypt rútu fyrir Ungmennafélagið Einherja á Vopnafirði. Rútan verður notuð til að ferja íþróttalið Einherja í kappleiki. Rútan er 16 farþega ökutæki af gerðinni Ford. Þetta segir Rögnvaldur Þorgrímsson, formaður Einherja, við fréttastofu.
Fyrirtæki Ratcliffes sem kaupir rútuna heitir Six Rivers og er leigutaki laxveiðiánna Selár og Hofsár í Vopnafirði auk fleiri laxveiðiá á Norðausturlandi. Ratcliffe er auk þess stór landeigandi á svæðinu.
Talsvert hefur verið fjallað um viðskipti Ratcliffes og jarðakaup í íslenskum fjölmiðlum á síðastliðnum árum og sumir eru gagnrýnir á þau en aðrir ekki.
Ratcliffe er sennilega bæði ríkasti og þekktasti athafnamaður sem hefur stundað fjárfestingar á Íslandi. Samkvæmt lista tímaritsins Forbes er hann í 153. sæti yfir ríkustu menn í heimi. Hann á eignir upp á rúmlega 2.200 milljarða króna.
Fjallað er um Jim Ratcliffe, Six Rivers og samfélagsleg áhrif milljarðamæringsins á samfélagið á Vopnafirði í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Hér er hægt að hlusta á þáttinn.
Búbót fyrir samfélagið, segir formaðurinn
Rögnvaldur Þorgrímsson er afar þakklátur Six Rivers fyrir rútuna. „Rútan er lent á landinu og það er bara verið að tollafgreiða hana í þessum töluðu orðum, síðast þegar ég vissi. Þetta er alveg dásamlegt og mikil búbót fyrir samfélagið að fá svona farartæki. Sérstaklega bara sparnaður fyrir okkur í raun og veru að geta flutt liðin okkar landshlutanna á milli. [...] Þetta er svona samfélagsrúta og við erum hrikalega þakklát fyrir þetta,“ segir Rögnvaldur við Þetta helst.
Hann segir að rútan verði líka notuð í önnur verkefni en fyrir knattspyrnu- og blaklið Ungmennafélagsins Einherja. Skólabörn og eldri borgarar á Vopnafirði eigi líka eftir að njóta góðs af henni.
Rögnvaldur segir að rútan verði merkt fyrirtæki Ratcliffes. „Það er í hönnun núna og hún er að ég best veit á leiðinni í merkingu á næstu dögum. Hún verður í Einherjalitunum og Six Rivers. Það er skemmtileg tilviljun að appelsínuguli liturinn er ríkjandi í náðum merkjum þannig að ég vona að þetta verði svolítið flott.“